Ljósmæðrafélag Íslands i samvinnu við Mind for life kynna nýtt og spennandi námskeið hér á Íslandi.
Námskeiðið „Þegar fjölskylda fæðist“, fjallar um áföll í fæðingarferlinu, úrvinnslu þeirra og fyrirbyggingu.
Námskeiðið er fyrir ljósmæður sem vinna með þunguðum konum, sinna konum í fæðingum eða fjölskyldum með ungabörn.
Markmið námskeiðsins: Þáttakendur munu öðlast betri skilning á hversu útbreiddar afleiðingar erfið byrjun á lífinu hefur fyrir bæði ungabarnið og fjölskylduna sem heild. Þeir munu fá góða innsýn í hvernig hægt er að fylgjast með einkennum á yfirbugun og sundrungu hjá fæðandi konu, ásamt því að fræðast um hvernig sé hægt að hjálpa fjölskyldunni að komast í gegnum áfallið. Einnig fá þeir innsýni og verkfæri til að vinna með og hjálpa nýbökuðum fjölskyldum strax frá fyrsta degi.
Dagur 1:
Mikilvæg hugtök um áfallastreitu
Þýðing sjálfsstjórnar og tengslamyndunar á meðgöngu
Áföll og úrvinnsla á meðgöngu
Áföll og úrvinnsla ungabarnsins strax frá fæðingu og fyrstu 6 mánuðina
Tilfelli og æfingar út frá kennsluefni
Dagur 2:
Áföll og úrvinnsla í fæðingunni
Tengsl endurupplifunnar og verkja í fæðingu
Kynning á snertingu sem úrvinnslu
TIlfelli og æfingar út frá kennsluefni
Úrdráttur og yfirferð í lok námskeiðs
Á námskeiðinu verður bæði fræðileg kennsla, tilfelli og umræður og eins er unnið með verklegaræfingar, það er hugsun námskeiðshaldara að þáttakendur námskeiðsins geti farið út strax eftir námskeiðið og unnið út frá þeirri kunnáttu sem þeir hafi öðlast á námskeiðinu.
Kennarar eru danskir en námskeiðið fer fram á ensku.
Kennarar: Maiken Bjerg, sjálfstætt starfandi sálgreinir, SE (somatic experience)-meðferðaraðili og Cand. Phil í músíkmeðferðarfræðum, löggiltur ráðgjafi og umsjónaraðili og kennari í SE-fræðum. Einn af handritshöfundum: Smerter hos börn, Frydenlund 2014
Janni Ammitzbøll: ljósmóðir og sjálfstættstarfandi sálgreinir MPF, SE-meðferðaraðili, Eigandi “mind for life”. Ein af handritshöfundum “Fødselsdepression, der er hjælp at få”, Frydenlund 2012
Námskeiðið sem er tveggja daga, verður haldið 29. og 30. apríl í Reykjavík og 6. og 7. maí á Akureyri.
Námskeiðsgjald er kr. 30.000
Vinsamlegast leggið inn á reikning 0313-22-710 kt. 560470-0229 til staðfestingar.
Skráning fer fram á netfangið gretarunarna@gmail.com
Nánari upplýsingar um innihald námskeiðsins hér